top of page

Orlofsmál

Reglur - Almennar upplýsingar - Verðskrá - Kort.

Smellið hér fyrir fyrirspurnir og bókanir

​Reglur um úthlutun orlofshúsa og íbúða Starfsmannafélags Fjarðabyggðar

 

1. Þeir sem rétt eiga á úthlutun eru félagar í Starfsmannafélagi Fjarðabyggðar og félagar sem eru komnir á eftirlaun.

Aðrir geta fengið úthlutun ef ekki berst umsókn frá þeim sem framan greinir. Heimilt er að innheimta hærra dvalargjald af utanfélagsmönnum.

2. Starfsaldur og fyrri úthlutanir ráða forgangi úthlutunar. Við úthlutun fer viðkomandi aftast í röðina.

3. Leiga utan orlofstíma þ.e. 1. okt. - 15. maí skerða ekki rétt félagsmanna til úthlutunar á orlofstíma 15. maí - 30. september. Úthlutun á sumarorlofstíma telst 1 vika. Leiga hefst á föstudegi kl. 16.00.

4. Sérstakar úthlutanir:
Jól og áramót, umsóknarfrestur til 1. október. Tímabil tvískipt

Páskaúthlutun. Tímabil tvískipt

Sumardagurinn fyrsti.

Vetrarúthlutun er að öðru leiti 4 mánuði fram í tímann.
Helgarleiga tveir sólahringar. Hægt er að leigja aukanætur við helgarleigu.

5. Úthlutun á húsi skerðir ekki rétt til úthlutunar á íbúð o.s.frv. Hver eign hefur sjálfstæða úthlutun.

6. Félagar í starfi hafa forgang um leigu orlofshúsa umfram félaga í eftirlaunadeild frá 15. maí - 30. september

7. Leigugjald skal greitt við úthlutun. Að öðrum kosti skal öðrum úthlutað orlofshús/íbúð.

8. Hafi enginn félagi sótt um má leigja íbúð/hús til utanfélagsmanna með 2 daga fyrirvara.

a9a4f051-a7c5-4973-afac-b1432b0a79ef_L.jpg

Lækjarsmári

Starfsmannafélag Fjarðabyggðar á íbúð í Lækjarsmára 4 í Kópavogi. Íbúðin er leigð út til félagsmanna. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og svefnpláss fyrir sex í rúmum. ferðarúm fyrir börn og dýnur fyrir tvo. Þvottahús er í íbúðinni og þar er bæði þvottavél og þurkari. 
Nettenging er í íbúðinni.

bb93623b-e237-4189-a42c-afa066ee8ffd_L.jpg

Kjarnaskógur

Starfsmannafélag Fjarðabyggðar á sumarbústað í Kjarnaskógi innan við Akureyri í Eyjafirði. Í bústaðnum eru þrjú herbergi með svefnplássi fyrir 6 manns auk þess er ferðarúm fyrir lítil börn. Bústaðurinn er vel útbúinn og er nettenging i boði. Heitur pottur á pallinum. Stutt er í leiksvæði og frábæra útivistaraðstöðu í Kjarnaskógi.

2018_sólsetur í Eyjafirði.jpg

Orlofshús verðskrá og þjónusta tengd orlofsmálum

Upplýsingar um verð fyrir leigu íbúðar og bústaðar

 

Starfsmannafélag Fjarðabyggðar

VERÐSKRÁ   2021

Kjarnaskógur :
Nóttin - fyrstu tvær (12.000 kr.) 6.000

Viðbótarnótt 5.000

Vikuleiga,  föstud.-föstud. 25.000

Lækjasmári :
Fyrsti sólahringur 8.000

Helgin (fyrstu tvær) 16.000
Viðbótarnótt 5.000
Vikuleiga,  föstud.-föstud. 27.000

Leiguverð fyrir utanfélgsmenn:
Sólarhringurinn 12.000
Vikuleiga 60.000

 

 

Útilegukortið 10.000 kr
 

STAF er einnig í samvinnu við
Bed & Breakfast Keflavík Airport Hotel
Hér má sjá upplýsingar um þjónustu þar.

 



 

bottom of page